Jólafrí nemenda og starfsfólks Tónskólans verður frá og með mánudeginum 17. desember. Kennsla hefst aftur þriðjudaginn 8. janúar 2008.
Starfsfólk Tónskólans óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Jólafrí TónskólansJólafrí nemenda og starfsfólks Tónskólans verður frá og með mánudeginum 17. desember. Kennsla hefst aftur þriðjudaginn 8. janúar 2008. Framhaldsprófstónleikar Bjarts Loga GuðnasonarBjartur Logi Guðnason heldur framhaldsprófstónleika í Hallgrímskirkju þriðjudaginn 11. desember n.k. kl . 12. Á efnisskrá tónleikanna verða verk eftir D. Buxtehude, F. Mendelssohn og L. Boëllmann. Tónleikarnir eru liður í kantorsprófi Bjarts Loga. Jólatónleikar TónskólansTvennir tónleikar verða á vegum Tónskólans fyrir jólin. Námskeið um Dieterich BuxtehudeDieterich Buxtehude – námskeið, orgelkennsla, fyrirlestrar og orgelandakt. Dagana 5. og 6. nóvember stendur Tónskóli Þjóðkirkjunnar fyrir námskeiði í Langholtskirkju þar sem Eyþór Ingi Jónsson, organisti við Akureyrarkirkju fjallar um tónskáldið Dieterich Buxtehude í kennslu- og fyrirlestraformi. 8 nemendur skólans koma fram í kennslustundum og við orgelandakt auk þess sem Eyþór Ingi heldur tvo fyrirlestra um tónskáldið. Námskeiðið er opið öllum nemendum Tónskólans og organistum og er sérstaklega bent á orgelandaktirnar og fyrirlestrana. sjá nánar fyrirkomulag námskeiðsins hér Eyþór Ingi Jónsson er organisti við Akureyrarkirkju, kennir við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Tónlistarskólann á Akureyri og hefur kennt námskeið í Barrokktónlist. Hann lauk kantorsprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar og hefur síðan stundað framhaldsnám við Tónlistarháskólann í Piteå, hjá Hans-Ola Ericsson, Gary Verkade og Erik Westberg.
Setning TónskólansTónskóli Þjóðkirkjunnar verður settur í Grensáskirkju föstudaginn 7. september kl. 17. Kennsla hefst svo mánudaginn 10. september samkvæmt stundaskrá.
Masterclasse á KirkjulistahátíðChristopher Herrick heldur meistaranámskeið á vegum Tónskólans í samvinnu við Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju 13. og 14. ágúst n.k. Sjá nánar á kirkjulistahatid.is
Umsókn um skólavistHér er hægt að sækja um skólavist í Tónskóla Þjóðkirkjunnar fyrir skólaárið 2007-2008 og senda á tonskoli@tonskoli.is. Skólaslit TónskólansSkólaslit Tónskóla Þjóðkirkjunnar fóru fram í Hallgrímskirkju föstudaginn 25. maí s.l. Að þessu sinni var ríkuleg uppskera þar sem sjö nemendur luku áfanga frá skólanum. Það voru þau; Gunnhildur Baldursdóttir, Hannes Baldursson, Julian Edward Isaacs, Kári Allansson og Lilja Eggertsdóttir luku kirkjuorganistaprófi, Arngerður María Árnadótttir lauk kantorsprófi og Tómas Guðni Eggertsson lauk einleiksáfanga. Er þeim öllum óskað til hamingju með áfangann og bjartrar framtíðar á akri kirkjutónlistarinnar.
Frábært námskeið RadulescuMichael Radulescu hélt námskeið í orgelleik núna í maí. Var námskeiðið í samvinnu við Langholtskirkju og Listvinafélag Hallgrímskirkju. Prófessor Radulescu kenndi í þrjá daga, tveir voru fyrir nemendur og starfsfólk skólans en sá þriðji opinn öllum organistum, var þetta námskeið styrkt sérstaklega af FÍO. Prófessor Radulescu kom einnig fram á þrennum tónleikum, hann lék á orgeltónleikum bæði í Langholtskirkju og í Hallgrímskirkju auk þess þá stjórnaði hann á kantötutónleikum í Langholtskirkju. Það var einstakt að fá að kynnast þessum mikla meistara bæði sem listamanni og ekki síður sem manneskju, en það var einmitt hin mannlega hlýja sem auk hins djúpa listfengis sem snerti hvað mest við að fá kynnast þesssum stóra listamanni. Prófessor Radulescu kennir Tómasi Guðna Eggertssyni nemanda við Tónskólann Skólaslit TónskólansSkólaslit Tónskólans verða í Hallgrímskirkju föstudaginn 25. maí kl. 17. Á skólaslitunum koma fram þeir nemendur sem eru að ljúka áfanga frá Tónskólanum. Það eru þau Gunnhildur Baldurssdóttir, Hannes Baldursson, Kári Allansson og Lilja Eggertsdóttir sem kjúka kirkjuorganistaprófi, Arngerður María Árnadóttir sem lýkur kantorsprófi og Tómas Guðni Eggertsson sem lýkur einleiksáfanga. |
|||||