Masterclassse með Radulescu


Orgelsnillingurinn Michael Radulescu kennir nemendum og starfsfólki Tónskólans á meistaranámskeiði 21.-23. maí. Koma Radulescu til landsins er samstarfsverkni Tónskólans við Langholtskirkju og Hallgrímskirkju þar sem Radulescu kemur fram á tónleikum sem orgelleikari og kórstjóri.

Vortónleikar Tónskólans

Vortónleikar Tónskóla Þjóðkirkjunnar verða í Hallgrímskirkju laugardaginn 19. maí kl. 14. þar koma fram nemendur skólans í orgelleik, kórstjórn og söng. Flutt verða verk eftir m.a. Bach, Vivaldi, Messiaen og Peeters.

Útskriftartónleikar Tónskólans

Miðvikudaginn 16. maí kl. 17 heldur Tómas Guðni Eggertsson
orgeltónleika í Hallgrímskirkju. Á efnisskrá tónleikanna verða verk
eftir D. Buxtehude, J.S. Bach, O. Messiaen og C. Franck. Tónleikarnir
eru liður í einleiksáfanganámi Tómasar Guðna.

Föstudaginn 18. maí kl. 17 heldur Arngerður María Árnadóttir
orgeltónleika í Hallgrímskirkju. Á efnisskrá tónleikanna verða verk
eftir J.S. Bach, D. Buxtehude, F. Mendelssohn og O. Messiaen.
Tónleikarnir eru liður í kantorsprófi Arngerðar Maríu.

Fimmtudaginn 24. maí kl. 12 heldur Lilja Eggertsdóttir 8. stigs tónleika í söng í Grensáskirkju. Á efnisskránni eru verk eftir m.a. J. S. Bach, W.A. Mozart, J. Brahms, Finn Torfa Stefánsson og Karl O. Runólfsson.

Hjálp í sálmalögum.


Mánudaginn 29. janúar sl. fékk undirritaður það skemmtilega verkefni annað árið í röð að kenna á hjálparnámskeiði Tónskóla Þjóðkirkjunnar fyrir starfandi organista sem ekki hafa kirkjutónlistarmenntun. Það hefur verið nefnt „Hjálp í sálmalögum.“ (sbr. „Hjálp í viðlögum.“)

Lesa áfram

Framhaldsprófstónleikar Julian Isaacs

Í tengslum við framhaldspróf Julian Isaacs verða tónleikar í Hallgrímskirkju föstudaginn 2. febrúar kl. 17. Þar mun Julian leika verk eftir Buxtehude, Bach, Hindemith og Boëllmann. Eru allir hjartanlega velkomnir.

Kórstjórnarámskeið hjá Stan Engebretson

Nú stendur yfir námskeið fyrir nemendur Tónskólans í kórstjórn. Námskeiðið stendur dagana 9. 15. og 16. janúar. Það er Stan Engebretson, prófessor við George Washington háskólann í Washington sem kennir. Hann er jafnframt listrænn stjórnandi kórs National Philharmonic sinfóníuhljómsveitarinnar og organisti við New York Avenue Presbeterian kirkjuna í sömu borg.

Jólatónleikar Tónskólans

Jólatónleikar Tónskóla Þjóðkirkjunnar verða haldnir í Langholtskirkju föstudaginn 8. des. kl. 18 og laugardaginn 9. des. kl. 12.30. Á fyrri tónleikunum verður orgelleikur, kórsöngur og einsöngur og á þeim síðari orgelleikur.

Vel heppnaður “masterclasse” Stefan Engels.

Laugardaginn 28. október s.l. hélt þýski orgelsnillingurinn Stefan Engels
“masterclasse” fyrir nemendur Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Var
“masterclassinn” samstarfsverkefni Tónskólans og FÍO/organistadeildar FÍH,
en FÍO fagnar nú 55 ára afmæli sínu. Fjórir nemendur Tónskólans léku
orgeltónlist frá ýmsum tímum fyrir próf. Engels og nutu frábærrar
leiðsagnar hans. Einnig fjallaði prof. Engels um efnisskrá sína er hann
lék á tónleikum sínum í Fríkirkjunni sunndaginn 29.10. og þá sérstaklega
um síðrómantíska tímabilið í Þýskalandi. Var almenn ánægja með kennsluna
og mikill fengur fyrir skólann að fá prof. Engels.

Skólinn settur á haustönn 2006 ásamt brautskráningu tveggja kantora

Tónskóli Þjóðkirkjunnar var settur föstudaginn 8. september s.l. í Grensáskirkju. Kristinn Örn Kristinsson, fráfarandi skólastjóri, útskrifaði við það tækifæri 2 kantora, þá Jón Bjarnason, starfandi organista við Seljakirkju í Reykjavík og Svein Arnar Sæmundsson, starfandi organista við Akraneskirkju. Eru þeim báðum fluttar hamingjuóskir á þessum tímamótum og óskað velfarnaðar í starfi.

Lesa áfram

Skólasetning 2006-2007

Tónskólinn verður settur í Grensáskirkju föstudaginn 8. september kl. 16.00. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þann 11. september.