Bókasafnskerfið Gegnir -Leiðbeiningar Nær allt efni bókasafns Tónskóla Þjóðkirkjunnar er skráð í bókasafnskerfið Gegni, samskrá íslenskra bókasafna. Hægt er að leita í kerfinu á vefgáttinni http://gegnir.is Einföld leit: Einfalda leitin á forsíðu Gegnis hentar vel í flestum tilfellum. Hægt er að setja inn eitt eða fleiri leitarorð og verður niðurstaðan nákvæmari eftir því sem fleiri orð eru notuð. Dæmi: Sláðu inn haydn nótur til að finna nótur sem Joseph Haydn hefur samið. Niðurstöðurnar birtast með lista yfir 10 titla á hverri síðu. 192 niðurstöður raðast eftir útgáfuári, það yngsta efst. Ítarleg leit: Í ítarlegu leitinni er mögulegt að leita í allt að þremur leitarsviðum samtímis. Einnig er hægt að afmarka leitina eftir bókasafni, tungumáli, efnistegund og útgáfuári. Dæmi: Finna orge nótnahefti eftir Pál Ísólfsson. · Veljið leitarsviðið Efni · Sláið inn orgel · Veljið leitarsviðið Höfundur · Sláið inn Páll Ísólfsson · Veljið Tegund efnis (neðarlega á síðunni) · Veljið Tónlist-Nóturí felliglugganum Niðurstöður fyrir hverja leit birtast fyrir aftan leitargluggann og sameiginleg niðurstaða sem uppfyllir skilyrði allra leita birtist neðst. Smellið á töluna til að sjá niðurstöðurnar. Afmarka leit við safn Tónskóla Þjóðkirkjunnar Dæmi: Leit að bókinni Beethoven í bréfi og brotum Verið í ítarlegu leitinni: · Veljið leitarsviðið Titill · Sláið inn titil bókarinnar Beethoven í bréfi og brotum · Veljið safnahóp úr felliglugganum vinstra megin Sérfræði-og stjórnsýslusöfn · Veljið tiltekið safn úr glugganum hægra megin Tónskóli Þjóðkirkjunnar Athugið! Þegar afmarkað er eftir safni nær leitin ekki yfir tímaritsgreinar. Nánari leiðbeinigar og hjálp má finna á hjálparsíðu Gegnis: