Safn Sigurðar Ingólfssonar

bokasafnsi.jpgSafn Sigurðar Ísólfssonar er í eigu Félags íslenskra organleikara en er varðveitt í Bókasafni Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Tónskólinn sá til þess að safnið væri skráð og var skráningin unnin sem lokaverkefni í bókasafns- og upplýsingafræði við HÍ. Verkefnið unnu þær Margrét R. Gísladóttir og Sara Halldórsdóttir og leiðbeinandi var Jóhanna Gunnlaugsdóttir lektor. Safninu var skipt í innlendan hluta og erlendan hluta, allar bækur voru skráðar en einnig voru öll einstök lög og textar skráð í innlenda hluta safnsins. Hér er hægt að nálgast lagalista sem unninn er úr skáraningunni.

Sigurður Ísólfsson fæddist á Stokkseyri 1908 og var bróðir Páls Ísólfssonar. Hann var úrsmiður að mennt en lærði orgelleik hjá bróður sínum og stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík. Sigurður var lengi organleikari við Fríkirkjuna í Reykjavík Sigurður var einn af stofnfélögum Félags íslenskra organleikara 1951 og síðar heiðursfélagi. Hann lést 1992 og eftirlét hann félaginu allar nótur sínar, er skyldu vera aðgengilegar öllum organistum.
(heimild: Skár yfir nótnasafn Sigurðar G. Ísólfssonar, Margrét R. Gísladóttir og Sara Halldórsdóttir, Feb.2003)