Kennarar
Björn Steinar Sólbergsson skólastjóri stundaði nám við Tónlistarskólann á Akranesi og Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Meðal kennara hans þar voru Fríða Lárusdóttir og Haukur Guðlaugsson. Framhaldsnám í orgelleik stundaði hann á Ítalíu (James E. Göettsche) og í Frakklandi (Suasan Landale) þar sem hann útskrifaðist með einleikararpróf í orgelleik (Prix de virtuosité) árið 1986. Hann starfaði sem organisti við Akureyrarkirkju frá árinu 1986 en starfar nú auk skólastjórastarfa sem organisti við Hallgrímskirkju. Björn Steinar hefur haldið fjölda tónleika hér heima og erlendis, og leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammerhljómsveit Akureyrar, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og The Cleveland Institute of Music Orchestra.
Eyþór Ingi Jónsson er organisti við Akureyrarkirkju. Hann kennir jafnframt við Tónlistarskólann á Akureyri og hefur einnig kennt á námskeiðum í Barrokktónlist. Hann lauk kantorsprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar stundaði síðan framhaldsnám við Tónlistarháskólann í Piteå, hjá Hans-Ola Ericsson, Gary Verkade og Erik Westberg þar sem hann lauk námi í kirkjutónlist og orgelleik.
Guðmundur Sigurðsson er organisti í Hafnarfjarðarkirkju. Hann lauk Kantorsprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar árið 1996, þar sem Hörður Áskelsson var orgelkennari hans og burtfararprófi frá sama skóla 1998. Vorið 2002 lauk hann mastersnámi í orgelleik „með láði“ frá Westminster Choir College, Princeton, New Jersey, þar sem Mark A. Anderson var aðalkennari hans.
Guðný Einarsdóttir er organisti í Fella- og Hólakirkju. Hún lauk námi frá Tónlistarskólanum í Reykjvík og Tónskóla Þjóðkirkjunnar þar sem kennari hennar var Marteinn H. Friðriksson.Vorið 2006 lauk hún mastersprófi í kirkjutónlist frá Det Kongelige Danske Musik-konservatorium í Kaupmannahöfn þar sem kennarar hennar voru Lasse Ewerlöf, Hans Ole Thers og Bine Bryndorf.
Hákon Leifsson lauk doktorsprófi á sviði kórstjórnar í Washington-University, Seattle í Bandaríkjunum. Hann hefur einnig numið leiklist, tónsmíðar og hljómsveitarstjórn. Hann stjórnar kórnum Vox Academica og starfar sem organisti Grafarvogskirkju.
Hörður Áskelsson kantor í Hallgrímskirkju og Söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar nam tónlist á Akureyri, í Reykjavík og Þýskalandi. Hann stjórnar Mótettukórnum og Schola Cantorum og hefur staðið að flutningi fjölda stærri tónverka og frumflutt ýmis stórvirki á sviði íslenskrar kirkjutónlistar ásamt því að koma fram sem orgelleikari víða um lönd.
Hreinn S. Hákonarson kennir kirkjufræði. Hann lauk guðfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1981 og var síðan við nám og störf í eitt ár hjá Nordiska Ekumeniska Institutet (Kirknasamband Norðurlanda) í Sigtuna í Svíþjóð. Vígður haustið 1982 til Söðulsholtsprestakalls á Snæfellsnesi og var þar sóknarprestur til ársins 1993 en þá tók hann við embætti fangaprests þjóðkirkjunnar. Situr í stjórn Skálholtsútgáfunnar – útgáfufélags þjóðkirkjunnar og á einnig sæti í Úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar. Þá er hann og formaður fangahjálparinnar Verndar og er ritstjóri Verndarblaðsins. Skrifstofa hans er í Grensáskirkju við hlið Tónskólans. Sjá einnig vefsíðu fangaprests: http://www.kirkjan.is/annall/fangaprestur
Jónas Þórir Þórisson er organisti í Mosfellsprestakalli. Hann lauk tónmenntanámi við Tónlistarskólann í Reykjavík, Kantorsprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar og hefur starfað við margvísleg tónlistarstörf.
Laufey Helga Geirsdóttir söngkennari stundað söngnám við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Elísabetu Erlingsdóttur. Hún lauk burtfararprófi frá Nýja tónlistarskólanum árið 2005 þar sem Jón Þorsteinsson var kennari hennar. Auk þess nám við Lichtenberg Institiut í Þýskalandi þar sem hún lærði kennsluaðferð í hljóm og hljómmyndun.
Hún hefur starfað sem söngkennari við Söngskóla Sigurðar Dements og Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Þar að auki hefur hún starfað við raddþjálfun ýmissa kóra.
Lenka Mátéová er fædd í Tékkóslóvakíu. Hún lauk kantorsprófi frá Konservatóríunni Kromeriz og masternámi við Tónlistarakademíuna í Prag. Á námsárunum vann hún til margra verðlauna í heimalandi sínu en hefur leikið einleik í Rússlandi og Þýskalandi.
Lenka hefur starfað á Íslandi frá árinu 1990, fyrst á Stöðvarfirði, árin 1993-2007 sem kantor við Fella- og Hólakirkju og nú við Kópavogskirkju. Hún hefur einnig tekið þátt í kammer- og kórtónleikum hér á landi og komið fram sem einleikari.
Auk starfa sinna við kirkjur hefur Lenka verið organisti með Karlakór Reykjavíkur, Drengjakór Reykjavíkur og Hljómeyki. Hún hefur spilað undir með þeim á tónleikum, í upptökum fyrir sjónvarpið, útvarpið og á hljómdiska.
Þröstur Eiríksson lagði stund á píanó- og orgelleik og fleiri greinar við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hann nam kirkjutónlist við tónlistarháskólann í Osló á árunum 1979-85 og lauk kandidatsprófi (cand.mag) árið 1983 og mastersprófi (cand.musicae) árið 1985. Frá 1985-90 starfaði Þröstur á Íslandi sem og kennari. Frá árinu 1990 hefur hann starfað sem kantor við Høvik kirkju fyrir utan Osló í Noregi. Þröstur hefur í námi og starfi lagt áherslu á sálma- og helgisiðafræði og skrifað fjölda greina og fyrirlestra. Hann hefur starfað sem stundakennari við tónlistarháskólann í Osló og kennt sálma- og helgisiðafræði við Tónskóla Þjóðkirkjunnar frá 2006.. Þröstur vinnur nú að lokafrágangi á doktorsritgerð sinni við tónlistarháskólann í Osló.


